Heilsan okkar og Farsældarnet barna – Fíknivandi ungmenna

Fundurinn fer fram í Veröld, húsi Vigdísar 27. febrúar kl. 11:30 til 13:00

Markmiðið með fundinum er að reyna að veita heildstæða mynd af stöðu barna og ungmenna á Íslandi í dag tengt fíknivanda. Fjallað verður um þær áskoranir sem við er að etja og hvernig mismunandi aðilar vinna að því að bregðast við stöðunni og bæta hana.

Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, lektor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum

Samstarfsaðili: Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Fundarstjóri: Sigrún Daníelsdóttir, verkefnisstjóri geðræktar hjá embætti landlæknis

Hlekkur á beint streymi frá fundinum: https://vimeo.com/event/5738412

Dagskrá

  • Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Menntavísindasvið HÍ – Vanlíðan ungmenna og notkun vímuefna
  • Dr. Eva Dögg Sigurðardóttir sérfræðingur í teymi tölulegra upplýsinga og rannsókna hjá Barna- og fjölskyldustofu og lektor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands – Breytingar á tilkynningum til Barnaverndar síðustu árin vegna áhættuhegðunar
  • Guðmundur Fylkisson, Aðalvarðstjóri hjá Lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu – Staðan í málaflokki ,,týndra barna“ og helstu breytingar síðustu ára
  • Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur hjá SÁÁ – Fíknvandi ungmenna, meðferðarúrræði og áskoranir
  • Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar – „Börnin okkar“ forvarnarverkefni Mosfellsbæjar
  • Pallborðsumræður í lokin.