Hvað skiptir máli fyrir farsæld barna? – Dr. Anne Edwards – 16. Október 2025

Hvenær: Fimmtudagur 16. október kl 14:20-16:00

Hvar: Háskóli Íslands. Saga – Stofa S-114

Dr. Anne Edwards, prófessor emerita í menntunarfræði við háskólann í Oxford heldur erindið: Lærdómur af þverfaglegu samstarfi sem styður við farsæld barna fimmtudaginn 16. október kl. 14.30-16.00 í stofu S-114 í Sögu.

Erindi Anne Edwards er hið fyrsta í fyrirlestrarröð Menntavísindasviðs og er samstarfsverkefni Farsældarnets Félagsvísindasviðs HÍ og Menntavísindasviðs.

Dagskrá

  • Ragnheiður Hergeirsdóttir, lektor í félagsráðgjafardeild býður fólk velkomið fyrir hönd Farsældarnetsins
  • Oddný Sturludóttir, doktorsnemi kynnir Anne Edwards
  • Anne Edwards, prófessor emerita við Oxford Háskóla, Lærdómur af þverfaglegu samstarfi sem styður við farsæld barna
  • Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs leiðir umræður að erindi loknu.
  • Jón Torfi Jónasson, prófessor emeritus flytur samantekt.

 

Ágrip

Með nýjum farsældarlögum gefst frábært tækifæri til að flétta saman þræði fagmennsku og umhyggju í nærumhverfi barna, í stefnumótun sem og á vettvangi skóla- og frístundastarfs. En farsældarlögin hafa einnig í för með sér væntingar til skólafólks og allra þeirra sem með þeim starfa, s.s. fagfólks í frístunda- og forvarnarstarfi, félagsráðgjafa og annarra í stoðþjónustu kringum börn og unglinga. Þessar væntingar  fela í sér að draga fram ólíkar tegundir fagmennsku, styrkleika, gildi og hvata ólíkra fagstétta. Þær fela einnig í sér áskorun um að koma auga á og skilja hvernig hægt er að virkja styrkleika, gildi og hvata ólíkra fagstétta, í þágu farsældar barna.

Í fyrirlestri sínum mun Anne Edwards miðla áratugalöngu rannsóknarstarfi sínu, sem leitt hefur í ljós hvernig fagfólk í Bretlandi tókst á við að mæta þessum áskorunum á árangursríkan hátt. Hún mun kynna þrjú hugtök sem tengjast innbyrðis og hafa verið kölluð „garðyrkjuverkfærin“. Þau hverfast um það hvernig sameiginleg þekking (common knowledge) byggist upp, hvernig sérhæfing fagfólks þróast í þverfaglegu samstarfi og í tengslum við aðra (relational expertise) og hvernig virkni fagfólks mótast af þeim tengslum (relational agency), í samstarfi við börn og fjölskyldur. Edwards mun kynna ramma um þverfaglegt samstarf sem þróaður var af áströlskum fræðikonum, á grunni garðyrkjuverkfæranna þriggja. Ramminn var þróaður með það í huga að koma auga á hvernig þverfaglegt samstarf þróast og dýpkar, í tengslum við nám og farsæld yngri barna. Ramminn hefur einnig verið nýttur í skólastarfi með eldri börnum, til að styðja við þverfaglega starfshætti. Að lokum ræðir Edwards um lærdóm rannsókna sinna og leiðir til innleiðingar fyrir stjórnvöld og stefnumótandi aðila, skólafólk og annað fagfólk á vettvangi, sem og háskóla sem mennta kennara og annað fagfólk.

Um Anne Edwards

Anne Edwards er prófessor emerita við háskólann í Oxford, deild menntunarfræða. Hún er fyrrverandi forseti breska menntarannsóknarfélagsins og hefur hlotið heiðursdoktorsnafnbót frá háskólunum Helsinki og Osló fyrir rannsóknir sínar á þverfaglegu samstarfi. Rannsóknir Anne Edwards byggjast á menningarsögulegri nálgun (Cultural-historical activity theory) á nám og þroska. Þessi nálgun mótar rannsóknir hennar í samstarfi við fræðifólk í Osló og hafa verið rauður þráður rannsókna hennar á þverfaglegu samstarfi síðastliðin 25 ár. Nýjasta bók Edwards, sem hún skrifaði með Marianne Hedegaard, ber titilinn: Taking Children and Young People Seriously: A Caring Relational Approach to Education.