Þjóðarspegill 2026 | Föstudagur 30. október, kl. 14:45–16:15 | Lögberg 101
Nær fimm ár eru liðin frá gildistöku laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Á málstofunni verður fjallað um stöðu innleiðingarinnar, þann árangur sem náðst hefur og þær áskoranir sem enn eru til staðar. Kynntar verða rannsóknir á innleiðingu farsældarlaganna, reynslu af samþættingu þjónustu og þróun nýrra starfshátta í skóla- og frístundastarfi. Jafnframt verður sjónum beint að þeim lærdómi sem draga má af reynslunni hingað til og næstu skrefum í þágu farsældar barna.
Erindi málstofunnar
- Þýðing þess að stefnumótun um farsæld barna á Íslandi var formgerð í lögum og samstarfi stjórnvalda
Ragný Þóra Guðjohnsen, Háskóla Íslands. - Grunnrannsókn, hvað svo? Innleiðing laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
Halla Björk Marteinsdóttir, Barna- og fjölskyldustofu, og Ásdís Arnalds, Háskóla Íslands. - Heillaspor til farsældar: Innleiðing tengslamiðaðrar nálgunar í íslensku skóla- og frístundastarfi
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Háskóla Íslands.
Málstofustjóri: Ragnheiður Hergeirsdóttir.
Nánari upplýsingar um málstofuna og ágrip erinda má finna hér